Salka2 ehf. og Þorkell Magnússon hæf til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf.
Hinn 29. apríl sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Salka2
ehf. sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf. sem nemur allt
að 20%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur einnig metið Þorkel Magnússon hæfan til að fara
með virkan eignarhlut í Öldu sjóðum hf., með óbeinni hlutdeild.