Samruni Kviku banka hf. og Virðingar hf.
Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 10. nóvember
2017 samruna Kviku banka hf. við Virðingu hf. á grundvelli 1. mgr. 106. gr.
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Kvika banki hf. tekur við öllum
réttindum og skyldum Virðingar hf. og verða fjármálafyrirtækin sameinuð undir
nafni Kviku banka hf.. Samruninn tekur gildi frá og með 18. nóvember 2017.
Auglýsing varðandi samrunann verður birt í
Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar
sé þess óskað.