Bráðabirgðastjórn skipuð yfir Gable Insurance AG
Fjármálaeftirlitið vísar til fréttar dags. 12. október sl.
þar sem fram kom að fjármálaeftirlitið í Liechtenstein (FMA) hefði gert Gable Insurance
AG að stöðva sölu nýtrygginga og endurnýjun eldri samninga. FMA hefur nú tilkynnt
að það hafi skipað bráðabirgðastjórn (e. Special Administrator) yfir Gable
Insurance AG.
Frekari upplýsingar er að finna í frétt
FMA á heimasíðu eftirlitsins.