Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Prudential Assurance Company Limited til Rothesay Life Plc. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 1. febrúar 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.