Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta líftryggingastofns
Hér með tilkynnist um
yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Equitable Life Assurance Society til
Utmost Life and Pensions Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við
tilkynningu dags. 29. júlí 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential
Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins
vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar
tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi
vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.