Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns
Hér með
tilkynnist um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns:
Yfirfærsla hluta
vátryggingastofns frá AXA Insurance UK Plc til Riverstone Insurance UK Limited.
Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 25. apríl 2018 frá
breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar
og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins
vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar
tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið
veitir nánari upplýsingar ef óskað er.