Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Domestic & General Insurance Plc til Domestic & General Europe AG
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Domestic & General Insurance Plc til Domestic & General Europe AG. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 12. desember 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.