Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns
Hér með tilkynnist um
yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Assured Guaranty (Europe) plc til
Assured Guaranty (Europe) SA. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við
tilkynningu dags. 2. október 2019 frá breska fjármálaeftirlitinu,
Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til
Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá
birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu
fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.