Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Ageas
Insurance Limited til RiverStone Insurance (UK) Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla
er í samræmi við tilkynningu dags. 2. desember 2019 frá breska
fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til
Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá
birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi
vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.