Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns
Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna:
Yfirfærsla hluta líftryggingastofns frá HSBC Life (UK) Limited til ReAssure Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.