Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns
Hér með
tilkynnist um yfirfærslu líftryggingastofns frá Abbey Life Assurance Co Limited
til Phoenix Life Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu
dags. 25. júlí 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation
Authority.
Vátryggingartakar
og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins
vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar
tilkynningar.
Ekki liggja fyrir
staðfestar upplýsingar um hvort hjá félaginu séu fyrirliggjandi
vátryggingasamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið
veitir nánari upplýsingar ef óskað er.