Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns
Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr.
56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða
yfirfærslu líftryggingastofns:
Yfirfærsla líftryggingastofns Prudential Retirement Income
Limited til The Prudential Assurance Company Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum
athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins
mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.