Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns.
Með vísan til 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu líftryggingastofns:
Yfirfærsla líftryggingastofns Aviva Annuity UK Limited til Aviva Life & Pensions UK Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.