Tímabundin stöðvun viðskipta – afturköllun
Fjármálaeftirlitið ákvað í morgun að stöðva tímabundið
viðskipti með fjármálagerninga Icelandair Group hf. sem teknir hafa verið til
viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf. Fjármálaeftirlitið hefur nú
afturkallað kröfur um tímabundna stöðvun í kjölfar tilkynningar frá félaginu um
framgang mála um kaup á Wow air hf.
Ákvörðunin var tekin til að vernda jafnræði fjárfesta.