TRS II gagnaskil í raunumhverfi
Fjármálaeftirlitið hefur
opnað fyrir TRS II gagnaskil í raunumhverfi til prófana fram að áramótum.
Sérstök athygli er vakin á því að auðkenni gagnaskilanna er 458 í raunumhverfi,
sem er annað en í prófunarumhverfi. Skilaskyldir aðilar eru hvattir til að
prófa að senda gögn inn í gegnum raunumhverfið fyrir áramót. Að loknu
prófunartímabili verður lokað fyrir raunumhverfið þann 2. janúar 2018 og
prófunargögn hreinsuð út.
Opnað verður fyrir raunskil
í raunumhverfi þann 3. janúar 2018.