Umræðuskjal um drög að endurskoðuðum reglum um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja
Fjármálaeftirlitið
hefur gefið út umræðuskjal
nr. 7/2017 sem inniheldur drög að endurskoðuðum reglum um eðlilega og
heilbrigða viðskiptahætti fjármálafyrirtækja. Tilefnið er breyting á lögum um
fjármálafyrirtæki sem breytir meðal annars ákvæðum 19. gr. er kveður á um
eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.
Fjármálaeftirlitið óskar eftir því að athugasemdir umsagnaraðila við
umræðuskjalið berist eigi síðar en 24. apríl nk.