Umræðuskjal um drög að reglum um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti vátryggingafélaga
Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal
nr. 8/2017 sem inniheldur drög að reglum um eðlilega og heilbrigða
viðskiptahætti vátryggingafélaga. Um er að ræða nýjar reglur sem settar eru með
heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið óskar eftir því að athugasemdir
umsagnaraðila við umræðuskjalið berist eigi síðar en 24. apríl næstkomandi.