Umsagnarferli hafið hjá EIOPA vegna fyrirhugaðra breytinga á gagnaskilatæknistöðlum
Fjármálaeftirlitið vekur
athygli á að Evrópska vátrygginga- og lífeyriseftirlitsstofnunin (EIOPA) hefur
í fréttatilkynningu (Opnast í nýjum
vafraglugga) á
heimasíðu sinni óskað umsagnar hagsmunaaðila um fyrirhugaðar breytingar á
gagnaskilatæknistöðlum og viðmiðum um upplýsingagjöf á vátryggingamarkaði skv.
Solvency II.
Umsagnarferlinu lýkur 3.maí
nk. og hvetur Fjármálaeftirlitið hagsmunaaðila á vátryggingamarkaði til að
nýta þetta tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri. Hér má nálgast gögn og upplýsingar
(Opnast í nýjum vafraglugga) til þátttöku í umsagnarferlinu.