Vefritið Fjármál er komið út
Fjármál, vefrit Fjármálaeftirlitsins, er komið út með fjölbreytilegu efni. Greinin: Hverjir eiga erindi í stjórn lífeyrissjóðs? er skrifuð af þeim Helgu Rut Eysteinsdóttur, lögfræðingi á eftirlitssviði, Hrafnhildi S. Mooney sérfræðingi á greiningarsviði og Maríu Finnsdóttur, sérfræðingi í fjárhagslegu eftirliti. Þá skrifar Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur á eftirlitssviði, grein sem nefnist FinTech – framtíð fjármálagerninga og Björn Z. Ásgrímsson, sérfræðingur í áhættugreiningu skrifar grein sem ber yfirskriftina Lífeyriskerfið – Áhætta sjóðfélaga . Ritinu lýkur á ritdómi um bókina Naked Statistics eftir Charles Wheelan en dóminn ritar Jón Ævar Pálmason, forstöðumaður á greiningarsviði Fjármálaeftirlitsins.