Fréttir


Fréttir: 2018 (Síða 6)

Fyrirsagnalisti

8.2.2018 : Morgunverðarfundi Fjármálaeftirlitsins um FinTech - Framtíð fjármálaþjónustu og eftirlits verður streymt á vef

Morgunverðarfundi Fjármáleftirlitsins um FinTech – Framtíð Fjármálaþjónustu og eftirlits, sem haldinn verður í fyrramálið, verður streymt hér á vefnum. Dagskrá hefst klukkan 8:45 og stendur til 10:30.

Lesa meira

5.2.2018 : Fjármálaeftirlitið veitir Inkasso ehf. innheimtuleyfi

Fjármálaeftirlitið veitti Inkasso ehf. þann 1. febrúar 2018 innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008.

Lesa meira

2.2.2018 : Fjármálaeftirlitið hefur metið RedRiverRoad ehf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf.

Hinn 23. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að RedRiverRoad ehf. væri hæft til að fara með yfir 50% virkan eignarhlut í verðbréfafyrirtækinu Íslenskum fjárfestum hf., sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Lesa meira

31.1.2018 : Aðvörun til almennings um sýndarfé (e. virtual currencies)

Fjármálaeftirlitið varar almenning við þeirri miklu áhættu sem fylgir viðskiptum með sýndarfé. Verð á sýndarfé, eins og Bitcoin, hefur sveiflast gríðarlega undanfarið ár og hafa miklar lækkanir fylgt í kjölfarið á miklum hækkunum. 

Lesa meira

30.1.2018 : Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs 2018

Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2018 var haldinn fimmtudaginn 18. janúar í fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Lesa meira

29.1.2018 : Uppfærð viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út uppfærð viðmið og aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum (SREP). Viðmiðin byggja á umræðuskjali nr. 16/2017 sem er að finna undir umræðuskjöl á vef Fjármálaeftirlitsins. Umsagnir vegna umræðuskjalsins er að finna á sömu undirsíðu.

Lesa meira

26.1.2018 : FinTech - Framtíð fjármálaþjónustu og eftirlits

Fjármálaeftirlitið býður til morgunverðarfundar um þróun og framtíð fjármálaþjónustu með FinTech á 2. hæð á Hilton Nordica Reykjavík þann 9. febrúar 2018. Léttur morgunverður er í boði frá kl. 08:15 en dagskrá hefst kl. 08:45 og stendur til kl. 10:30.

Lesa meira

18.1.2018 : Umsagnarferli vegna fyrirhugaðrar íhlutunar ESMA vegna mismunasamninga og tvíundarvalrétta sem bjóðast almennum fjárfestum

Fjármálaeftirlitið birti frétt hinn 21. desember síðastliðinn um yfirlýsingu Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsins (ESMA) vegna markaðssetningar mismunasamninga (contracts for difference) og tvíundarvalrétta (binary options) sem bjóðast almennum fjárfestum. Þar kom fram að ESMA hefði í hyggju að nýta heimild samkvæmt 40. gr. MiFIR reglugerðarinnar til íhlutunar til að:

Lesa meira

12.1.2018 : Nýtt skipurit Fjármálaeftirlitsins

Stjórn Fjármálaeftirlitsins staðfesti fyrr í þessari viku nýtt skipurit fyrir stofnunina. Markmið breytinganna er meðal annars að skýra ábyrgðarlínur innan Fjármálaeftirlitsins og gera skipulag þess aðgengilegt fyrir þá sem eiga í samskiptum við stofnunina. Hið nýja skipurit fellur ennfremur betur að evrópska fjármálaeftirlitsumhverfinu, sem Fjármálaeftirlitið er hluti af, og gildandi stefnu þess en það eldra.

Lesa meira

5.1.2018 : Tilkynning um óbreyttan sveiflujöfnunarauka

Fjármálaeftirlitið tilkynnti í dag um óbreyttan sveiflujöfnunarauka í samræmi við tilmæli fjármálastöðugleikaráðs frá 22. desember 2017.

Lesa meira
Síða 6 af 6






Þetta vefsvæði byggir á Eplica