desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta líftryggingastofns frá Standard Life Assurance Limited til Standard Life International DAC. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 30. október 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraKynning á viðmiðunarreglum EBA um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja fór fram í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins þann 17. október sl. Kynningin var vel sótt og mættu yfir 100 starfsmenn og stjórnarmenn fjármálafyrirtækja. Hrafnhildur S. Mooney, sérfræðingur í stjórnarháttum, kynnti nýjar viðmiðunarreglur EBA um innri stjórnarhætti fjármálafyrirtækja og Berglind Helga Jónsdóttir, lögfræðingur, kynnti nýjar viðmiðunarreglur EBA/ESMA um mat á hæfi stjórnar, framkvæmdastjóra og lykilstarfsmanna fjármálafyrirtækja.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Aviva Life And Pensions UK Limited til Friends First Life Assurance Designated Activity Company. Fyrirhuguð yfirfærsla eru í samræmi við tilkynningu dags. 16. október 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraÁ miðvikudaginn 17. október kl. 8:30-10:00 fer fram kynning á viðmiðunarreglum EBA um innri stjórnarhætti og sameiginlegum viðmiðunarreglum ESMA og EBA um mat á hæfi stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og lykilstarfsmanna í húsakynnum Fjármálaeftirlitsins að Katrínartúni 2, 3. hæð.
Vinna er hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið og hefur frétt þess efnis verið birt á vef forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í fréttinni kemur fram að ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hafi ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið tilkynnti í dag um óbreyttan sveiflujöfnunarauka í samræmi við tilmæli fjármálastöðugleikaráðs frá 5. október 2018.
Lesa meiraInnheimturáðgjöf ehf., kt. 460410-0450, hefur afsalað innheimtuleyfi sínu, sbr. b-lið 1. mgr. 17. gr. a innheimtulaga nr. 95/2008. Fjármálaeftirlitið staðfesti afsal innheimtuleyfis Innheimturáðgjafar ehf. þann 12. september 2018. Í samræmi við framangreint verður tilkynning um afsal starfsleyfis Innheimturáðgjafar ehf. birt í Lögbirtingarblaði.
Lesa meiraOlaf Forberg hefur lagt inn starfsleyfi sitt til miðlunar vátrygginga, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga. Fjármálaeftirlitið staðfesti innlögn starfsleyfis Olaf Forberg þann 12. september 2018. Í samræmi við framangreint hefur Fjármálaeftirlitið fellt Olaf út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning um innlögn starfsleyfis birt í Lögbirtingablaði.
Lesa meiraÍ dag taka gildi lög nr. 15/2018 um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár. Þar með öðlast reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 648/2012 um OTC-afleiður, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár gildi. Sú reglugerð hefur einnig verið kölluð „European Market Infrastructure Regulation“ eða „EMIR“
Lesa meiraAnnað tölublað Fjármála 2018 er komið út og er blaðið óvenju efnismikið að þessu sinni. Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, skrifar greinina: Áratugur frá hruni – Umbætur í starfi Fjármálaeftirlitsins og verkefnin framundan, Jón Ævar Pálmason, sérfræðingur í áhættugreiningu fjallar um uppgjör lífeyrissjóða og áskoranir. Þeir Guðmundur Örn Jónsson og Kristján Ólafur Jóhannesson, sérfræðingar í áhættugreiningu, skrifa greinina Basel III: Lokaskrefin í nýjum staðli. Þá fjallar Hjálmar Stefán Brynjólfsson, lögfræðingur á sviði yfirlögfræðings, um PSD2 og tæknistaðlana sem varða framtíðina. Loks skrifar Bjarni Magnússon, sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti, um hvort hluthafastefnur íslenskra fagfjárfesta hafi breyst á síðustu árum.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið veitti Aur app ehf., kt. 570715-0620, þann 14. september 2018 innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 6/2018 um drög að reglum um vátryggingafélög sem undanþegin eru tilteknum ákvæðum laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016.
Lesa meiraStjórn Fjármálaeftirlitsins hefur afturkallað starfsleyfi Guðmundar Þórs Magnússonar til miðlunar vátrygginga samkvæmt lögum nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, á grundvelli þess að starfsemi hefur verið hætt í meira en sex mánuði samfellt, sbr. 5. töluliður 1. mgr. 34. gr. laganna. Í samræmi við framangreint hefur Fjármálaeftirlitið fellt Guðmund út af vátryggingamiðlaraskrá og verður tilkynning um afturköllun starfsleyfis birt í Lögbirtingablaði.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá QBE Insurance (Europe) Limited og yfirfærslu vátryggingastofns frá QBE Re (Europe) Limited til QBE Europe SA/NV. Fyrirhugaðar yfirfærslur eru í samræmi við tilkynningu dags. 10. september 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Fidelis Underwriting Ltd til Fidelis Risk Ireland DAC. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 7. september 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Admiral Insurance Company Limited til Admiral Europe Compania de Seguros S.A. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 5. september 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Aviva Insurance Limited til Aviva Insurance Ireland Designated Activity Company. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dags. 4. september 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið skráði Skiptimynt ehf., kt. 481014-0500, Engjateigi 3, 105 Reykjavík, sem þjónustuveitanda viðskipta milli sýndarfjár, rafeyris og gjaldmiðla hinn 31. ágúst 2018, skv. 25. gr. a laga nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. 4. gr. laga nr. 91/2018 og reglur nr. 670/2018.
Lesa meiraFjármálaeftirlitið birti hinn 5. júlí síðastliðinn túlkun um markaðssetningu, dreifingu og sölu á tvíundar valréttum og mismunasamningum. Í túlkuninni var vísað til ráðstöfunar Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) frá 27. mars 2018. ESMA hefur nú tekið ákvörðun um að framlengja gildistíma ráðstöfunar stofnunarinnar, en samhliða því ákveðið að undanskilja tilteknar tegundir tvíundar valrétta frá banni stofnunarinnar. Nánari upplýsingar um ákvörðun ESMA er að finna hér.
Lesa meiraHér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofna frá Endurance Worldwide Insurance Limited og Sompo Japan Nipponkoa Insurance Company of Europe Limited til SI Insurance (Europe), SA. Fyrirhugaðar yfirfærslur eru í samræmi við tilkynningu dags. 24. ágúst 2018 frá breska fjármálaeftirlitinu Prudential Regulation Authority.
Lesa meira