Fréttir


Fréttir: 2009 (Síða 5)

Fyrirsagnalisti

13.3.2009 : Nítján sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins

Nítján manns sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins en umsóknarfrestur rann út 11. mars. Umsækjendurnir eru: Lesa meira

12.3.2009 : Skilmálar fjármálagernings frá nýju bönkunum til þeirra gömlu

Í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME) dags. 6. mars 2009 kemur fram að skilmálar fjármálagerningsins sem gefinn verður út frá nýja bankanum til þess gamla, vegna greiðslu á endurgjaldi fyrir því sem ráðstafað er til nýja bankans, skuli liggja fyrir eigi síðar en 18. maí 2009.

Lesa meira

10.3.2009 : Athugasemd vegna ummæla Marel Food Systems hf.

Í ljósi umfjöllunar Marel Food Systems hf. í fjölmiðlum í gær vegna stjórnvaldssektarákvörðunar Fjármálaeftirlitsins á hendur félaginu þann 4. desember sl., telur Fjármálaeftirlitið nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram. Lesa meira

9.3.2009 : Fjármálaeftirlitið grípur inn í rekstur Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf.

Fjármálaeftirlitið hefur á grundvelli laga nr. 125/2008, sem sett voru í október síðastliðnum vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o. fl., gripið inn í rekstur Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf.

Lesa meira

4.3.2009 : Um hlutverk Fjármálaeftirlitsins og verkaskiptingu þess og annarra embætta.

Nokkurs misskilnings virðist hafa gætt í umræðunni frá því að bankarnir þrír féllu um hlutverk Fjármálaeftirlitsins. Með þessum línum leitast höfundur við að útskýra þetta hlutverk og verkaskiptingu milli Fjármálaeftirlitsins og annarra embætta. Lesa meira

3.3.2009 : Dreifibréf vegna innheimtustarfsemi viðskiptabanka, sparisjóða, annarra lánastofnana og verðbréfafyrirtækja

Fjármálaeftirlitið sendi þann 27. febrúar 2009, dreifibréf til viðskiptabanka, sparisjóða, annarra lánastofnana og verðbréfafyrirtækja. Í dreifibréfinu var áréttað að heimild til núverandi gjaldtöku rynni út í lok febrúar.

Lesa meira

27.2.2009 : Umræðuskjal um drög að leiðbeinandi tilmælum um skýrslur tryggingastærðfræðinga til FME

Fjármálaeftirlitið hefur birt til umsagnar umræðuskjal nr. 1/2009. Umræðuskjalið er um drög að leiðbeinandi tilmælum um skýrslur tryggingastærðfræðinga líftryggingafélaga til Fjármálaeftirlitsins.

Lesa meira

24.2.2009 : Verðmat nýju bankanna

Í ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME) dags. 9. janúar 2009 kom fram að ekki væri unnt að ljúka verðmati eigna og skulda NBI hf., Nýja Glitnis banka hf. og Nýja Kaupþings banka hf. innan tilgreindra tímamarka upphaflegra ákvarðana

Lesa meira

23.2.2009 : Túlkun Fjármálaeftirlitsins á tilkynningar- og birtingarskyldu vegna veðkalla í fjármálagerningum

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út túlkun á tilkynningar- og birtingarskyldu 126. og 127. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, vegna veðkalla í fjármálagerningum.

Lesa meira

10.2.2009 : Fjármálaeftirlitið endurnýjar samninga um eftirlitsverkefni við Kauphöll Íslands

Forstjórar Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands hafa endurnýjað yfirlýsingu um eftirlitsverkefni sem Kauphöllin annast fyrir Fjármálaeftirlitið. Þá hafa Kauphöllin og Fjármálaeftirlitið einnig endurnýjað samning um að Kauphöllin taki að sér að annast yfirlestur og staðfestingu lýsinga.

Lesa meira

6.2.2009 : Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt mat á hæfi 66 framkvæmdastjóra

Fjármálaeftirlitið hóf framkvæmd svonefnds hæfismats á framkvæmdastjórum fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða í lok árs 2005, en slíkt mat hefur verið framkvæmt á vátryggingasviði frá árinu 1999. Þannig hafa 66 framkvæmdastjórar farið í gegnum hæfismat hjá Fjármálaeftirlitinu.

Lesa meira

6.2.2009 : Ný stjórn Fjármálaeftirlitsins

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hefur í dag skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins sem hér segir: Lesa meira

6.2.2009 : Fjárvakri - fjármálaþjónustu ehf. veitt innheimtuleyfi

Fjármálaeftirlitið hefur veitt eftirfarandi fyrirtæki innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008: Fjárvakur - fjármálaþjónusta ehf., kt. 521202-2620, Reykjavíkurflugvelli, Reykjavík. Lesa meira

3.2.2009 : Fundir Fjármálaeftirlitsins með erlendum aðilum

Ýmsir aðilar hafa tjáð sig að undanförnu um samskipti Fjármálaeftirlitsins við erlenda aðila. Því hefur verið slegið fram að Fjármálaeftirlitið hafi verið í hlutverki klappstýru og verndað bankana fyrir erlendri gagnrýni. Lesa meira

2.2.2009 : Hvað er að frétta af rannsóknum Fjármálaeftirlitsins?

Það er skiljanlegt að marga þyrsti í að vita meira um rannsóknir á vegum Fjármálaeftirlitsins í aðdraganda og kjölfar falls bankanna þriggja. Þessar línur eru skrifaðar til að veita þær upplýsingar sem mögulegt er innan þess lagaramma sem Fjármálaeftirlitið starfar en sá rammi takmarkar möguleika starfsmanna Fjármálaeftirlitsins til að tjá sig um mál sem þar eru til skoðunar. Þá er einnig sá möguleiki fyrir hendi að opinber umfjöllun um einstök mál á rannsóknarstigi geti spillt rannsóknum eða ónýtt mál fyrir dómi. Lesa meira

30.1.2009 : Álagning stjórnvaldssekta

Fjármálaeftirlitið hefur lagt stjórnvaldssektir á tæplega 30 aðila frá miðju ári 2007 til ársloka 2008. Um er að ræða álagningu stjórnvaldssekta vegna brota á lögum um vátryggingastarfsemi, lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um verðbréfaviðskipti. Lesa meira

29.1.2009 : Verðmat nýju bankanna þriggja

Mati Fjármálaeftirlitsins á eignum og skuldum nýju bankanna miðar vel áfram. Lesa meira

29.1.2009 : Ráðstefna á vegum CESR 23. febrúar 2009

Samstarfsnefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR) heldur ráðstefnu 23. febrúar nk. í París. Ráðstefnan ber heitið "Preparing for the future: where to now for regulation in the field of securities".

Lesa meira

28.1.2009 : Umfjöllun Helga Seljan og Kristins Hrafnssonar í Kastljósi um Fjármálaeftirlitið

Í Kastljósi þann 27. janúar fjölluðu þeir Helgi Seljan og Kristinn Hrafnsson um viðskipti Roberts Tchenguiz við Kaupþing. Í umfjölluninni komu fram alvarlegar missagnir um starfsemi Fjármálaeftirlitsins og rakalausar ásakanir og dylgjur sem ekki er hægt að láta ósvarað. Lesa meira

16.1.2009 : Mat á hæfi

Fjármálaeftirlitið hefur það hlutverk samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki að meta hæfi bankastjóra fjármálafyrirtækja. Bankastjórar nýju bankanna þriggja hafa farið í gegnum mat á hæfi og hafa þeir nú fengið tilkynningu um að þeir hafi staðist matið. Lesa meira
Síða 5 af 6






Þetta vefsvæði byggir á Eplica