Fréttir


Fréttir (Síða 26)

Fyrirsagnalisti

26.1.2015 : Upplýsingar um aðila sem hefur ekki leyfi til miðlunar vátrygginga

Fjármálaeftirlitinu hafa borist upplýsingar um að Vátryggingaráðgjöf Stefáns Gissurarsonar ehf. bjóði neytendum þjónustu sem fellur undir miðlun vátrygginga, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga.

Lesa meira

15.1.2015 : ORSA leiðbeiningar 2015

Samkvæmt 24. tölul. leiðbeinandi tilmæla nr. 3/2014 skulu vátryggingafélög framkvæma árlega eigið áhættu- og gjaldþolsmat (hér eftir ORSA) sem veitir stjórn og forstjóra upplýsingar um virkni áhættustýringar og gjaldþolsstöðu, jafnt núverandi sem líklega framtíðarstöðu.

Lesa meira

13.1.2015 : EBA gefur út leiðbeinandi tilmæli um könnunar- og matsferli eftirlitsstofnana

EBA, Evrópska eftirlitsstofnunin á bankamarkaði, hefur gefið út leiðbeinandi tilmæli um könnunar- og matsferlið (e. SREP), en það er viðvarandi ferli varðandi alla eftirlitsþætti sem snúa að eftirlitsskyldum aðila og er ætlað að gefa heildarmynd af honum.

Lesa meira

13.1.2015 : Drög að leiðbeinandi tilmælum um lykilupplýsingar

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 1/2015 um drög að leiðbeinandi tilmælum um lykilupplýsingar.

Lesa meira

8.1.2015 : Fjármálaeftirlitið gefur út tvenn leiðbeinandi tilmæli

Fjármálaeftirlitið hefur í dag gefið út tvenn ný leiðbeinandi tilmæli, annars vegar nr. 6/2014 um útvistun hjá eftirlitsskyldum aðilum og hins vegar nr. 7/2014 um innri endurskoðun vátryggingafélaga.

Lesa meira

7.1.2015 : EIOPA gefur út drög að framkvæmdatæknistöðlum og leiðbeinandi tilmælum vegna Solvency II til umsagnar

Evrópska eftirlitsstofnunin á vátrygginga- og lífeyrismarkaði (EIOPA) birti 3. desember sl. drög að framkvæmdatæknistöðlum (e. Implementing Technical Standards) og leiðbeinandi tilmælum (e. Guidelines) vegna innleiðingar Solvency II tilskipunarinnar (2009/138/EB). EIOPA var komið á fót með reglugerð ESB nr. 1094/2010/EB og skv. 16. gr. þeirrar reglugerðar hefur EIOPA heimild til að setja leiðbeinandi tilmæli til að auka samræmingu í regluverki og eftirliti innan ESB. Tilmælin útskýra betur eftirlitsframkvæmd og kröfur í Solvency II og því telur Fjármálaeftirlitið það til hagsbóta fyrir alla aðila á markaðnum að farið sé að þeim.

Lesa meira

5.1.2015 : Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins, en skipunartími fyrri stjórnar rann út um áramót. Ásta Þórarinsdóttir er nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Auk formanns eiga eftirtaldir aðal- og varamenn sæti í stjórn: Tómas Brynjólfsson, aðalmaður (varaformaður), Arnór Sighvatsson, aðalmaður, Friðrik Ársælsson, varamaður, Ástríður Jóhannesdóttir, varamaður og Harpa Jónsdóttir, varamaður.   

Lesa meira

2.1.2015 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Eignarhaldsfélagið Borgun slf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Borgun hf.

Fjármálaeftirlitið hefur hinn 22. desember 2014 komist að þeirri niðurstöðu að Eignarhaldsfélagið Borgun slf. sé hæft til að fara með virkan eignarhlut í Borgun hf., sem nemur 25,00%. Eignarhaldsfélagið Borgun slf. á sem stendur 24,96% eignarhlut í Borgun hf. Lesa meira

2.1.2015 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Íslenska eignastýringu hf., Pivot ehf. (áður Gunner ehf.) og Straum fjárfestingabanka hf. hæf til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Íslenskum verðbréfum hf.

Fjármálaeftirlitið hefur hinn 19. desember 2014 komist að þeirri niðurstöðu að félögin Íslensk eignastýring hf., Pivot ehf. og Straumur fjárfestingabanki hf. séu hæf til að fara með aukinn virkan eignarhlut í  Íslenskum verðbréfum hf. sem nemur 100%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002. Lesa meira

2.1.2015 : EIOPA gefur út umræðuskjal um mat á jafngildi Bermuda, Japans og Sviss gagnvart tilteknum ákvæðum í Solvency II

Þrjár greinar Solvency II tilskipunarinnar (2009/138/EB) fjalla um svokallað jafngildi (e. equivalence) ríkja utan EES, en í því felst að löggjöf og umgjörð eftirlits í þeim ríkjum þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að teljast jafngild því sem gerðar eru kröfur um í Solvency II. Kröfurnar eru misjafnar eftir því hvers konar jafngildi er um að ræða.

Lesa meira

22.12.2014 : Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns

Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofns: Lesa meira

19.12.2014 : Umræðuskjal vegna leiðbeinandi tilmæla um starfsemi vísitölusjóða og kauphallarsjóða

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 15/2014 sem inniheldur drög að leiðbeinandi tilmælum um starfsemi vísitölusjóða og kauphallarsjóða (UCITS ETF). Tilmælin varða upplýsingagjöf vegna starfsemi vísitölusjóða og kauphallarsjóða (UCITS ETF) og er þeim ætlað að stuðla að því að slíkir sjóðir veiti fjárfestum upplýsingar í samræmi við bestu framkvæmd eins og hún hefur verið afmörkuð í viðmiðunarreglum Evrópska verðbréfa- og markaðseftirlitsins, ESMA/2014/937.

Lesa meira

18.12.2014 : Jólastyrkur

Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að senda ekki rafrænt jólakort í ár. Í staðinn mun stofnunin veita Sjálfsbjörgu, landssambandi fatlaðra örlítinn stuðning núna þegar hátíð ljóss og friðar er að ganga í garð. Lesa meira

15.12.2014 : Fjármálaeftirlitið gefur út drög að reglum um ársreikninga lífeyrissjóða

Fjármálaeftirlitið hefur gefið út umræðuskjal nr. 14/2014, sem inniheldur drög að reglum um ársreikninga lífeyrissjóða. Umræðuskjalið felur í sér tillögu að heildarendurskoðun á gildandi reglum um ársreikninga lífeyrissjóða.

Lesa meira

10.12.2014 : Upplýsingafundur með eftirlitsskyldum aðilum vegna framgangs innleiðingar CRD IV og tengdra gagnaskila

Í morgun stóð Fjármálaeftirlitið fyrir kynningu fyrir eftirlitsskylda aðila á fjármálamarkaði sem skila þurfa gögnum á grundvelli CRD IV og afleiddra tæknistaðla.  Mæting var góð þrátt fyrir illviðri og slæma færð, en nokkuð var um afboðanir og er það miður að ekki komust allir sem hug höfðu á kynningu um þetta efni vegna veðurs.

Lesa meira

10.12.2014 : Fjármálaeftirlitið (FME) birtir upplýsingar um iðgjöld og samanlagða markaðshlutdeild erlendra vátryggingafélaga á Íslandi 2008 - 2012

FME hefur tekið saman tölulegar upplýsingar um starfsemi erlendra vátryggingafélaga á Íslandi árin 2008-2012. Félög þessi hafa höfuðstöðvar sínar á Evrópska efnahagssvæðinu og hafa heimild til starfsemi á Íslandi á grundvelli IX. kafla laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum sem fjármála- og/eða vátryggingaeftirlit í viðkomandi ríkjum sendu FME. Tekið skal fram að réttmæti gagnanna er á ábyrgð viðkomandi eftirlita. Meðfylgjandi töflum er ætlað að gefa mynd af umfangi starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi og þar með heildarstærð þeirra á markaði í einstökum greinum. Hafa ber í huga að markaðshlutdeild erlendra vátryggingafélaga getur tekið breytingum í takt við sveiflur á gengi íslensku krónunnar.

Lesa meira

8.12.2014 : Árétting til neytenda á vátryggingamarkaði um mikilvægi upplýstrar ákvörðunar við breytingu á líf- og/eða sjúkdómatryggingum

Athygli Fjármálaeftirlitsins hefur verið vakin á því að viðskiptavinir vátryggingafélaga (vátryggingatakar) í tilviki  líf- og sjúkdómatrygginga hafi á undanförnum mánuðum í nokkrum mæli fært sig á milli vátryggingafélaga. Við slíkar aðstæður er rétt að undirstrika mikilvægi upplýstrar ákvörðunar við töku vátrygginga.

Lesa meira

5.12.2014 : Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands endurnýja samstarfssamning sinn

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning sinn og var hann undirritaður hinn 1. desember síðastliðinn. Við sama tækifæri var einnig undirritað samkomulag Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins um framkvæmd lausafjáreftirlits lánastofnana.

Lesa meira

4.12.2014 : Fjármálaeftirlitið hefur metið Íslenska eignastýringu hf., Gunner ehf. og Straum fjárfestingabanka hf. hæf til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum verðbréfum hf.

Fjármálaeftirlitið hefur hinn 24. nóvember sl. komist að þeirri niðurstöðu að félögin Íslensk eignastýring hf., Gunner ehf. og Straumur fjárfestingabanki hf. séu hæf til að fara með virkan eignarhlut í  Íslenskum verðbréfum hf. sem nemur 33%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002. Lesa meira

1.12.2014 : Niðurstöður álagsprófs á evrópsk vátryggingafélög

Evrópska eftirlitsstofnunin á lífeyris- og vátryggingamarkaði (EIOPA) hefur birt niðurstöðu álagsprófs á vátryggingafélög á Evrópska efnahagssvæðinu. Allar starfandi samstæður íslenskra vátryggingafélaga tóku þátt í svokölluðu kjarnaálagsprófi (e. core module) en auk þess prófaði EIOPA sérstaklega áhrif lágvaxtaumhverfis í þeim ríkjum þar sem slíkt á við.

Lesa meira
Síða 26 af 50






Þetta vefsvæði byggir á Eplica